Sól í krepputíð
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld. Jakob er orðinn rúmlega 7 mánaða og kominn með tvær tennur, framtennur í neðri góm og er sem aldrei fyrr algjör gleðipinni, alltaf hraustur og kátur. Mín er farin að vinna hálfan daginn. Ég vinn fjóra tíma fyrir hádegi og á meðan sér amma Valdís um að stjana við drenginn sinn og strauja og brjóta saman þvott. Amma Hanna kemur svo sterk inn um miðjan mars þegar hún snýr aftur úr sólinni. Þær ætla að skiptast á að vera heima hjá okkur með hann svo mamman geti nú sinnt framabraut sinni sem aldrei fyrr.
Jóhann Sölvi er orðinn tólf ára, rétt að detta í unglinginn en hann er alveg frábær með Jakob, ótrúlega ábyrgðarfullur og fer létt með að sinna öllum hans frumþörfum. Jóhann sér þó aðallega um að örva hláturkirtlana hans duglega alltaf þegar tækifæri gefst, enda elska þeir hvorn annan.
Þannig að á síðustu og verstu tímum er óhætt að segja að deginum lengi með hækkandi sól hjá okkur fjölskyldunni. Ég hef verið ráðin sem verkefnastjóri hjá Héðinsreit ehf sem mun vera ein stærsta íbúðabyggingaframkvæmd í Reykjavík um þessar mundir. Héðinsreitur er í eigu Fjárfestis þar sem ég hef unnið sl. þrjú ár þannig að ég er ennþá á sama stað.
Það er eins gott að maður sé að gera það gott, þar sem að hann Júlli sinn leyfir sér að detta í ræktina á miðjum morgni eftir morgunfund og hlaupa af sér spikið enda af nógu að taka eftir velmegunina -segir hann ! Þeir voru nú ansi kokhraustir sessunautar Júlíusar um markaðinn þegar þeir sátu í gufunni í laugum um daginn og ræddu heimsmálin. Hann var fljótur að átta sig á því að allir sex sem þar inni sátu voru fasteignasalar. Jújú það er nóg að gera! uhumm..